Nokkur bandarísk börn voru spurð spurninga um hjónabandið og samskipti kynjanna. Hér koma nokkur gullkorn.
Hvernig veit maður hverjum maður á að giftast?
"Maður verður að finna einhvern sem hefur gaman af því sama og maður sjálfur. Ef maður til dæmis hefur gaman af íþróttum verður hún að hafagaman af því að þú hafir gaman af þeim og sjá um snakkið og dýfuna." Alan, 10 ára.
"Það ákveður það enginn áður en hann verður fullorðinn hverjum hannætlar að giftast. Guð ákveður það allt löngu áður og maður kemst ekki að því fyrr en það er orðið of seint." Kirsten, 10 ára.
Á hvaða aldri er best að ganga í hjónaband?
"Það er best að vera 23 ára því þá er fólkið búið að þekkjast í heila eilífð." Camille, 10 ára.
"Maður þarf ekki að vera á neinum sérstökum aldri, maður þarf bara að vera bjáni." Freddie, 6 ára.
Hvernig sér maður hvort ókunnugt fólk sé gift?
"Maður verður bara giska út frá því hvort manni sýnist þau vera að æpa á sömu krakkana." Derrick, 8 ára.
Hvað eiga foreldrar þínir sameiginlegt?
"Bæði vilja ekki eignast fleiri börn." Lori, 8 ára.
Hvað gerir fólk á stefnumótum?"
"Á stefnumótum á að vera gaman því fólkið er að kynnast hvort öðru.Meira að segja strákar geta haft eitthvað að segja ef maður hlustar nógu lengi." Lynnette, 8 ára.
"Á fyrsta stefnumótinu lýgur fólk bara hvort að öðru og það er yfirleitt nóg til að það hafi áhuga á að hittast aftur." Martin, 10 ára.
Hvað myndirðu gera ef þú færir á stefnumót sem endaði illa?
"Ég myndi hlaupa heim og þykjast vera dauður. Daginn eftir myndi ég hringja í öll blöðin og láta þau skrifa um mig í andlátsfréttunum." Craig, 9 ára.
Hvenær er óhætt að kyssa einhvern?"
Ef hann er ríkur." Pam, 7 ára.
Það er bannað með lögum ef maður er ekki orðinn átján ára og það erekki sniðugt að lenda í einhverju veseni út af því." Curt, 7 ára.
"Reglan er sú að ef maður kyssir einhvern á maður að giftast honum og eignast með honum börn. Þannig á maður að gera." Howard, 8 ára
Hvort er betra að vera einhleyp(ur) eða í hjónabandi?
"Það er betra fyrir stelpur að vera einhleypar en það er verra fyrir stráka. Það verður einhver að taka til eftir stráka." Anita, 9 ára.
Hvernig væri heimurinn ef enginn giftist?
"Það væri alla vega erfitt að útskýra alla þessa krakka." Kelvin, 8 ára.
Hvernig á að viðhalda ástinni í hjónabandinu?
"Maður á að segja konunni sinni að hún sé falleg, jafnvel þótt hún líti út eins og vörubíll." Ricky, 10 ára.
15. nóvember 2009 klukkan 20:00
Björg Hákonardóttir 1 athugasemd
voru 30 m test á æfingu í gær á göddum og allt ! í standandi starti var ég á 4,57 og í fljúgandi á 3,79. Alveg ágætis tímar, en ég vill samt hlauap hraðar. Upplifði það að hausinn var langt á undna fótunum og mér fannst fæturnir ekkert hreyfast! En þetta kemur með góðum æfingum! í næstu viku er test í 150 m, spennandi að sjá hvað kemur út úr því !
var að skoða á matarvefnum og setja inn það sem ég borðaði í gær, sem var bara ágætt magn, hrafgrautur í moegunmat, plóma í snarl, brauð með osti og peperoni, 1/2 epli og bollasúpa í hádeginu, jógúrt og 1/2 epli eftir skóla, 1/2 banani fyrir æfingu og hinn eftir æfingu, og svo pasta með skinuku, grænmeti og sósu. En þeir sögðu að þetta væru bara um 1300 kkal, sem mér finnst mjög lítið miða við að ég ætti samkvæmt þeim að borða svona 2600kkal - verð greinileg að borða aðeins meira :P
Annars hugsa ég um lítið annað en innrilíffæri þessa daga, anatomya, sjúkdómar, sjúkraþjálfun, líffeðlisfræði - er áhugaverðar en það hljómar ;)
Maggi Valli á afmæli í dag og ég vakti hann í morgun með eggjabrauði og 4 pökkum sem innihéldu, klipfitumæli, ofnhanska, topgear þætti og bol. Hann var eins og 4 ára - alveg ofur spenntur :-)
11. nóvember 2009 klukkan 11:31
Björg Hákonardóttir 2 athugasemdir
Er ekki alveg að standa mig í þessu bloggi ! en ætla að reyna að vera duglegri og skrifa inn nokkrar línur alavega einu sinni í viku! alavega þá bara svo sem dagbók fyrir mig í ellinni :P
Verknámið á LSH í Fossvogi var fínt, var ánægð með staðinn og kennarana og alla hina sem unnu þarna, allir viljugir að hjálpa og margt gagnlegt sem ég lærði. Í síðustu vikunni minn var allt að verða crasy vegna svínaflensunar og var maður orðin nett stressaður á að fá þetta, endaði á því að fá bóluefni - sem heilbrigðisstarfsmaður og nú anda ég mjög létt :)
Nú er bara skólinn á fullu, allt um innrilíffæri, er bara ágætt, þó svo að jólin fangi athygli mína meira þessa dagana - aðalega að sanka að mér almennilegu skrauti! en nú er þetta fystu jólin okkar Magga þar sem við getum skreytt okkar eigin íbúð :)
Æfingarnar eru á fullu og ganga svo vel að ég þori varla að trúa því ! er mjög bjartsýn á framtíðina og spennt fyrir því að sjá hvernig innanhústímabilið verður :)
ást á ykkur
02. nóvember 2009 klukkan 11:20
Björg Hákonardóttir Engin athugasemd
nú er allt komið á fullt, skólin byrjaði á mánudaginn og það með látum. Erum núna í 2 vikna undirbúningsnámskeiðí fyrir verknám. Skrifa skýrslur, taka sögu, æfa hitt og þetta. Mjög skemmtilegt og maður þarf sko að fara að hugsa núna, illa ryðgaður eftir sumarfríið. Búskapurinn okkar Magga gegnur líka alveg glimrandi vel. Erum bara að verða komin með hið besta heimili og eigum allt sem við þurufm, alavega eftir að við eignuðumst kitchen aid hrærivél sem ég keypti á kosta kjörum í Byko - ótrúlega sátt með sjálfa mig þar :)
Í vetur er stefnan svo sett á að fara að æfa frjálsar aftur að fullu, eða svona eins mikið á fullu og ég tel líkama minn ráða við. Verð nú samt að halda golfsveiflunni við líka og þjálfa einhver kríli í frjálsum.
Annars ætla ég að keppa í 100m á laugardaginn á MÍ 15-22 ára, verð að keppa því þetta er síðasta árið mitt þar :P svo ætlum við systur og fljúga beint norður í brúðkaup, hlakka alveg ótrúlega til að fara í það :)
Við Maggi ákváðum að skella okkur í Hot yoga áðan og það var svona ljóamndi fínt, reyndar svitnaði Maggi mun meira en ég og þegar við vorum að borða kvöldmatinn var alveg pissufar eftir hann í stólum :P
Ætla að henda mér í sturtu fyrir svefnin svo ég svæfi ekki bekkjarfélagana í færslutækni á morgun
26. ágúst 2009 klukkan 22:43
Björg Hákonardóttir 3 athugasemdir
ég held ég ætli að byrji aftur að blogga, þó svo að engin sé að lesa þetta, fór að skoða gamlar færslur um daginn og það er svo gaman að eiga þetta og rifja upp góðar miningar og líka sjá hvað maður var einu sinni vitlaus og kjánalegur :P
Annars er allt bara í lukkunarstandi hjá mér, nóg að gera, vinna á Eir hjá yndislega gamla fólkinu með frábærum konum. Golfast með foreldrunum, reyna að hlaupa smá, sauma og læra að hekkla :)
Svo fer 3.árið mitt í sjúkraþjálfun að byrja í lok ágúst, trúi því varla að ég sé komin svona langt, finnst svo ótrúlega stutt síðan ég byrjaði í þessu námi :)
Við hjúin erum bara í chillinu heima þessa helgina, bátsferð og grilluð pizza í gær, chill í dag, á morgun er stefnan sett á Keili og svo í Bláa lónið :)
01. ágúst 2009 klukkan 21:16
Björg Hákonardóttir 2 athugasemdir
Þurfti að fara áðan þegar ég var búin að þjálfa að kaupa bensín. Fór á eina góða orkustöð og ýtti á takkan til að opna bensín lokið, fór svo og græjaði dæluna og ætlaði að fara að dæla þegar ég sá að lokið opnaðist ekki, fór þá aftur og ýtti á takan og ekkert gerðist! fór þá að skoða þetta aðeins betur og sá að það var smá lítl klakki þarna á milli loksins og bílsins. Hringdi í Magga og hann gat ekkert gert nema segja mér að reyna að opna þetta. Mér var orðið frekar mikið kalt og var ekki með þolinmæði í þetta, fór samt að reyna og blés á klakan og reyndi að ýta honum með spennunni minni, það tókst og svo fór ég aftur til að ýta á takann og sá þá að ég hafi verið að ýta á takkann til þess að opna skottið allan tíman!! ohhh ég var ekki sátt með sjálfa mig
Annars er bara brjálað að gera í skólanum, endlaust af verkefnum og svo bara fyrsta próf eftir 10 daga!
20. nóvember 2008 klukkan 20:06
Björg Hákonardóttir 2 athugasemdir
Jeyyy, fékk póst í dag þar sem mér var tilkynnt að mér væri boðinn inngagna í GR (golfklúbb reykjavíkur). Get ekki annað en glaðst yfir því þar sem ég hélt að þetta myndi taka mun lengri tíma :) en þeir vildu greinilega fá mig Nú þýðir þá ekkert annað en að fara að koma sér í að vera dugelgru að taka í kylfurnar og viðhalda sveiflunni.......
11. nóvember 2008 klukkan 17:04
Björg Hákonardóttir 1 athugasemd
Það var svaka stuð hjá okkur fjölskyldunni á ABBA á laugardaginn :) komum frekar seinnt svo öll sætin voru upptekinn en mamma reddaði bara stól fyrir Stefaníu hné aðgerðarsjúkling og við höfðum það fínt á góðum stað mjög nálægt og bein á móti sviðinu :) Í gær fór ég svo að horfa á Audrey keppa á skautum, hún var alveg ótrúlega flott og mig kittlaði alveg smá í tærnar að skella mér inn á svellið og rifja upp gamla takkta ;) hahha Fór líka í 6 ára afmæli og fékk góðar kökur :) klikkar aldrei.
Var samt alltof þreytt í morgun þegar ég vaknaði fór eiginlega sofandi í skólann, eða svona næstum.
En annars á Maggi sæti afmæli á morgun og núna ætla ég að halda áfram að lesa ;)
10. nóvember 2008 klukkan 20:43
Björg Hákonardóttir 1 athugasemd
Fór sem fulltrúi UMFÍ í Húsaskóla í morgun til að kynna Fjölni og Net ratleik sem er í tengslum við Forvarnar daginn 9.bekk :) Sá í pósti sem ég fékk að Hanna Brina Borgarstjóri myndi mæta svo ég sett upp spari andlitið og svona :P svo mæti ég frekar tímalega og þá er mér tilkynnt að Ólfur Ragnar sé að mæta, vá hvað ég var feginn að hafa lagt aðeins í klæðnaðinn í morgun, bara vera snyrtilegur til fara :) Annars heppnaðist þetta allt saman mjög vel, mikið verið að impra á því að vera í íþróttum sem ég var mjög sátt með! þar sem ég er mjög hlint íþróttum og alemmnri íþróttaiðkunn barna! Finnst t.d. að margir þjálfarar og íþróttafélög mættu pæla aðeins meira og betur í þörfum og áhuga barnana sem eru að mæta á æfingar og vera ekki að stja ungum krökkum einhverja loka kosti, um að þau komist ekki í liðið og þess háttar, við vitum það jú öll að það eru bara x-margir í fótbolta, handbolta liði. En það vilja líka ekkert allir vera ða keppa og ef börn eru í mörgum íþróttum afhverju ekki þá bara leifa þeim að njóta sín eins og þau vilja í þeim öllum! Það hjálpar þeim á öllum stöðum og hvetur þau til þess að vilja vera í íþróttum, ekki að þetta sé eithtvað verða að mæta til að komast í liðið og þess háttar! alaveg þetta er orðið alltof langt en mitt markmið sem þjálfari er að börnum líði vel, þau fái hreyfingu og finnist gaman að koma á æfingar, eiginist vini, séu í góðum félagsskap og læri það fyrir lífstíð hvað það er gott að hreyfa sig :)
Annars er ég að fara með familýunni á ABBA showið á laugardaginn, hlakka alveg rosalega til! :D
06. nóvember 2008 klukkan 22:05
Björg Hákonardóttir 1 athugasemd
Á fimmtudaginn fór ég í tíma á Grensásdeild landspítalans. vorum þarna til að horfa á mann sem var með frávik í göngu eftir slyst sem hann lenti í. Í kjölfari af þessu fór ég að hugsa um hvað maður er alveg hrikalega heppin að vakna heilbrigður á heimil sínu á hverjum morgni! það er svo ótrúlega mikið af fólki sem er þarna inni, vegna þess að það slasðist illa við athafnir sem okkur finnst svo sjálfsagt að gera og komast oftast heil út úr, eins og að hjóla, fara út að labba, taka til og snyrta í kirngum okkur og margt fleira!
Annars fórum við Maggi á Fló á skinni í gær, svakalega mikil misskilningur og vitleysa en alveg hrikalega fyndið og mjög góðir brandarar alveg á færibandi :)
Ætla að halda áfram að læra rafamgnsfræði
02. nóvember 2008 klukkan 11:34
Björg Hákonardóttir 2 athugasemdir